Fara í efni

Íslandsbleikja ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 5 eldisker við Silfurstjörnuna

Málsnúmer 201504012

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 127. fundur - 14.04.2015

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 5 nýjum steinsteyptum eldiskerjum við Silfurstjörnuna.

Meðfylgjandi erindi er afstöðumynd, en nákvæmari teikningar af kerjum verða sendar síðar.

Skipulags- og byggingarnefnd fellst á uppsetningu kerjanna, enda eru þau innan núverandi athafnasvæðis. Nefndin áréttar að áður en til frekari uppbyggingar kemur á lóðinni verði að vinna deiliskipulag.