Fara í efni

Fasteignafélag Húsavíkur ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir svalir á viðbyggingu að Vallholtsvegi 9

Málsnúmer 201505048

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 128. fundur - 12.05.2015

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir svölum við Vallholtsveg 9 á Húsavík. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af útliti svalanna.

Skipulags- og byggingarnefnd telur að grenndarkynna þurfi erindið áður en afstaða er tekin. Skipulags- og byggingarfulltrúa er heimilað að gefa út byggingarleyfi ef ekki eru gerðar athugasemdir af nágrönnum og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Örlygur vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis