Fara í efni

Þórey Agnarsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahús að Laxárlundi 7

Málsnúmer 201507037

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 135. fundur - 24.11.2015

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir frístundahúsi að Laxárlundi 7. Húsið er 37,3 m² að flatarmáli og teiknað af Friðriki Ólafssyni verkfræðingi. Fyrir liggur skriflegt samþykki nágranna í Laxárlundi 8 fyrir húsbyggingunni nær lóðarmörkum en 10 m.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir þau frávik frá deiliskipulagi sem felast í nálægð hússins frá lóðarmörkum. Byggingarfulltrúa er falið að gefa út byggingarleyfi fyrir húsinu.