Fara í efni

Ragnar Hermannsson f.h. Steinsteypis ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir skála fyrir starfsmannaaðstöðu að Haukamýri 3

Málsnúmer 201509013

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 132. fundur - 15.09.2015

Óskað er eftir leyfi til að setja tímabundið niður vinnubúðareiningar sem starfsmannaðstöðu á lóð fyrirtækisins að Haukamýri 3. Meðfylgjandi erindi eru teikningar af húsinu og afstaða þess. Húsið er 129,1 m² að grunnfleti. Fyrir liggur áritun Vinnueftirlits á teikningum sem og samþykki eldvarnareftirlits.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.