Fara í efni

Pétur Jónasson f.h. M W Group sækir um leyfi fyrir skilti við framkvæmdasvæðið á Bakka

Málsnúmer 201511062

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 134. fundur - 17.11.2015

Óskað er eftir leyfi til að setja upp tímabundið skilti við framkvæmdasvæðið á Bakka. Skiltið er 4x6 m² að fleti og mun standa við aðkomu að lóðinni að Bakkavegi 2 þar sem uppbygging er hafin að verksmiðju PCC Bakki Silicon. Meðfylgjandi erindi eru myndir af fyrirhuguðu skilti. Skiltið mun standa til verkloka uppbyggingar sem áætluð eru í lok árs 2017.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.