Fara í efni

Örlygur Hnefill Örlygsson f.h. Könnunarsögusafnsins ehf. óskar eftir lóðarstækkun og nýjum lóðarsamningi að Héðinsbraut 3A

Málsnúmer 201511068

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 134. fundur - 17.11.2015

Óskað er eftir að gefinn verði út lóðarleigusamningur fyrir Hlöðufell að Héðinsbraut 3a til samræmis við afmörkun lóðarinnar í deiliskipulagi.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að gefinn verði út lóðarleigusamningur til samræmis við gildandi deiliskipulag.

Bæjarstjórn Norðurþings - 53. fundur - 01.12.2015

Fyrir bæjarstjórn liggur eftirfarandi bókun frá 134. fundi skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings: "Óskað er eftir að gefinn verði út lóðarleigusamningur fyrir Hlöðufell að Héðinsbraut 3a til samræmis við afmörkun lóðarinnar í deiliskipulagi. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að gefinn verði út lóðarleigusamningur til samræmis við gildandi deiliskipulag."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og byggingarnefndar