Fara í efni

Almar Eggertsson f.h. Impact ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir Gararsbraut 21, Húsavík

Málsnúmer 201601026

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 136. fundur - 20.01.2016

Óskað er eftir leyfi til breytinga á Garðarsbraut 21 á Húsavík. Um er að ræða breytingar á íbúðarhluta hússins sem miðar að því að breyta honum í gistiheimili. Meðfylgjandi umsókn er teikning unnin af Almari Eggertssyni byggingarfræðingi þar sem gerð er ítarleg grein fyrir breytingunum.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaðar breytingar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum þegar fullnægjandi gögn hafa borist.