Fara í efni

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi fyrir gististað í flokki 2 að Mararbraut 13

Málsnúmer 201605110

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 4. fundur - 14.06.2016

Óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki 2 að Mararbraut 13 á Húsavík.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggst gegn veitingu leyfis til sölu gistingar að Mararbraut 13 þar sem ekki er bílastæði á lóð við húsið. Nefndin telur að nýting hússins til ferðaþjónustu muni hafa neikvæð áhrif á afnot nærliggjandi lóðarhafa á þau fáu almennu bílastæði sem eru á svæðinu.