Fara í efni

Sigþór Þórarinsson, f.h. Urða ehf, óskar er eftir leyfi til að byggja vélageymslu að Sandfellshaga 1

Málsnúmer 201608040

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 6. fundur - 16.08.2016

Sigþór Þórarinsson, f.h. Urða ehf, óskar eftir leyfi til að byggja vélageymslu að Sandfellshaga 1 í Öxarfirði. Teikning er unnin af Sæmundi Á. Óskarssyni byggingatæknifræðingi. Fyrirhuguð vélageymsla er 350 m². Byggingarfulltrúi kynnti nefndinni viðhorf næsta nágranna sem ekki setur sig upp á móti fyrirhugaðri byggingu.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.