Fara í efni

Íbúðir fyrir starfsmenn PCC í Holtahverfi - Framlengd beiðni

Málsnúmer 201611016

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 9. fundur - 15.11.2016

PCC Seaview Residences ehf óska eftir að svæði E í deiliskipulagi Holtahverfis verði áfram tekið frá vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar fyrirtækisins. Óskað er eftir að fyrri lóðarráðstöfun verði framlengd um sex mánuði.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrri samningur við PCC Seaview Residences um svæði E í Holtahverfi verði framlengdur til loka febrúar 2017.

Sveitarstjórn Norðurþings - 62. fundur - 22.11.2016

Á 9. fundi skipulags- og umhverfisnefndar lá fyrir ósk frá PCC Seaview Residences ehf um að svæði E í deiliskipulagi Holtahverfis verði áfram tekið frá vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar fyrirtækisins. Óskað var eftir að fyrri lóðarráðstöfun verði framlengd um sex mánuði. Eftirfarandi var bókun nefndarinnar: "Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrri samningur við PCC Seaview Residences um svæði E í Holtahverfi verði framlengdur til loka febrúar 2017."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.

Skipulags- og umhverfisnefnd - 10. fundur - 09.12.2016

Bergur Elías Ágústsson og Anna Kristín Hjartardóttir kynntu hugmyndir PCC Seaview Residences á E-svæði Holtahverfis. Hugmyndir lúta að því að byggja 11 parhús af tveimur mismunandi gerðum og síðar fimm fjögurra íbúða hús.
Skipulags- og umhverfisnefnd fellst fyrir sitt leyti á fyrirhugaða uppbyggingu og felur skipulagsráðgjafa að vinna tillögu að deiliskipulagi sem heimilar hana. Nefndinni líst þó ekki á að tveimur syðstu lóðum verði breytt í parhúsalóðir og felur skipulagsráðgjafa að leita leiða til að koma parhúsum fyrir á öðrum lóðum.