Fara í efni

Veiðifélag Mýrarkvíslar sækir um byggingarleyfi fyrir húsi að Langholti Reykjahverfi

Málsnúmer 201612021

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 11. fundur - 13.12.2016

Óskað er leyfis til að byggja 110,4 m² veiðihús á lóðinni Langholti úr landi Þverár í Reykjahverfi. Fyrir liggur teikning unnin af Haraldi S. Árnasyni.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð húsbygging sé í samræmi við áður kynntar hugmyndir og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum hefur verið skilað.