Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi f.h. Gentle Giants-Hvalaferða ehf., vegna Hafnarstéttar 11/Flókahús.

Málsnúmer 201706065

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 17. fundur - 13.06.2017

Óskað er byggingarleyfis fyrir breytingum á Flókahúsi að Hafnarstétt 13 á Húsavík. Fyrir liggja teikningar unnar af Almari Eggertssyni hjá Faglausn.
Skipulags- og umhverfisnefnd Norðurþings telur að byggingin sé í samræmi við skipulagsskilmála deiliskipulags. Nefndin heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum þegar fyrir liggja jákvæðar umsagnir eldvarnareftirlits, vinnueftirlits og heilbrigðiseftirlits.