Fara í efni

Samstarf ISAVIA og Norðurþings á Húsavíkurflugvelli

Málsnúmer 201709155

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 227. fundur - 28.09.2017

Unnið hefur verið að því að leita leiða til samstarfs við ISAVIA um bakvakt og mönnun að hluta til á Húsavíkurvelli, með það að markmiði að tryggja enn betur öryggi flugfarþega, t.a.m. vegna sjúkraflutninga. Á borðinu liggja drög að samstarfssamningi milli aðila.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við ISAVIA á grunni fyrirliggjandi samningsdraga.