Fara í efni

Ósk um stuðning Norðurþings vegna umsóknar um einkaleyfi á vörumerkinu Arctic Coast Way

Málsnúmer 201710119

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 230. fundur - 17.10.2017

Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir því að sveitarfélagið taki þátt í umsókn um að fá einkaleyfi á vörumerkinu Arctic Coast Way. Að sveitarfélagið styðji heils hugar við framtakið og telji einkaleyfið mikilvægt til þess að byggja upp öflugri ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Markmiðið er að vörumerkið Arctic Coast Way verði styrkur fyrir Norðurþing sjálft, ferðaþjónustufyrirtæki og aðra tengda aðila innan sveitarfélagsins hvað varðar atvinnuuppbyggingu til framtíðar.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að svara erindinu.