Fara í efni

Fyrirspurn um græn svæði á Raufarhöfn og umhirðu við gangstéttir.

Málsnúmer 201711026

Vakta málsnúmer

Framkvæmdanefnd - 23. fundur - 15.11.2017

Fyrir framkvæmdanefnd liggur erindi um græn svæði á Raufarhöfn og umhirðu við gangstéttir. Er mælst til þess að það verði elft á næsta ári á Raufarhöfn, öll slík umhirða og sérstakt átak gert í þeim málum. Þessu hefur verið ábótavant undanfarin ár og hefur áhrif á ásýnd og líðan bæjarbúa.

Framkvæmdanefnd mun beina því til þjónustustöðvar á Raufarhöfn að leggja aukna áherslu á umhirðu grænna svæða og gangstétta.