Fara í efni

Velferðarnefnd: Til umsagnar 26.mál, frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir

Málsnúmer 201712101

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd - 18. fundur - 22.01.2018

Umsagnarbeiðni frá Velferðarnefnd Alþingis. Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram. Félagsmálastjóri leggur til að tekið verði undir þá umsögn.
Félagsmálanefnd tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Félagsmálanefnd vekur athygli á því að Norðurþing veitir þjónustu á mjög víðfeðmu svæði þar sem saman fara þéttbýliskjarnar og mikið dreifbýli sem geti verið erfitt yfirferðar. Í ljósi þess telur félagsmálanefnd Norðurþings afar mikilvægt að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fái aukið fjármagn til að styðja við akstursþjónustu.