Fara í efni

Kynning á starfsemi nýs ferðaþjónustufyrirtækis á Húsavík - MTB Húsavík ehf

Málsnúmer 201804222

Vakta málsnúmer

Framkvæmdanefnd - 28. fundur - 09.05.2018

MTB Húsavík ehf. ferðaþjónustufyrirtæki er að hefja starfsemi sína á Húsavík og er markmið erindisins að kynna betur fyrirkomulag og rekstur fyrirtækisins.
Fyrirtækið býður upp á ferðir á sérútbúnum jeppa á Norðausturlandi annarsvegar og ferðir á fjallahjólum um nágrenni Húsavíkur hinsvegar.
Framkvæmdanefnd tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að útfæra leiðir í samstarfi við MTB Húsavík ehf.