Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við bílskúr að Boðagerði 4, Kópaskeri

Málsnúmer 201808011

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 5. fundur - 16.08.2018

Óskað er eftir leyfi til að byggja 36 m² viðbyggingu við bílgeymslu að Boðagerði 6 á Kópaskeri. Teikning er unnin af Marínó Eggertssyni. Fyrir liggur skriflegt samþykki nágranna að Boðagerði 6. Slökkviliðsstjóri telur ekki tilefni til að leggjast gegn viðbygginunni.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaða uppbyggingu áður en afstaða er tekin til erindisins. Grenndin innifeli lóðirnar að Boðagerði 2 og 6 og Akurgerði 3, 5 og 7. Ef ekki koma fram athugasemdir við grenndarkynningu, heimilar ráðið byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi.