Fara í efni

Beiðni um lóðarstofnun undir íbúðarhús í landi Klifshaga 2, Öxarfirði

Málsnúmer 201809048

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 9. fundur - 25.09.2018

Stefán Pétursson óskar samþykkis fyrir stofnun leigulóðar undir einbýlishús í landi Klifshaga 2 í Öxarfirði. Með umsókn fylgir hnitsett lóðarblað auk yfirlýsinga frá eigendum Klifshaga 1 og Klifshaga Haga um að þeir geri ekki athugasemdir við uppbyggingu íbúðarhúss á lóðinni. Lóðin er 2.500 m² að flatarmáli.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarstofnunin verði samþykkt.

Sveitarstjórn Norðurþings - 85. fundur - 30.10.2018

Á 9. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað;

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarstofnunin verði samþykkt.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs.