Fara í efni

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir Sólheima, Iðavöllum 6

Málsnúmer 201810014

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 11. fundur - 09.10.2018

Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi til sölu gistingar í einbýlishúsinu að Iðavöllum 6. Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti þær athugasemdir sem sveitarfélaginu bárust frá nágrönnum vegna rekstursins í mars 2016, sem og vinnureglur um umsagnir vegna rekstrarleyfa sem sveitarstjórn Norðurþings samþykkti í apríl 2018.
Meirihluti skipulags- og framkvæmdaráðs veitir jákvæða umsögn um erindið. Ráðið leggur þó að rekstraraðila að leiðbeina gestum sínum vel og merkja jafnframt skýrlega aðkomu að húsi til að draga úr ónæði gagnvart nágrönnum. Ennfremur hvetur ráðið lóðarhafa til að útbúa bílastæði innan lóðar.

Hjálmar Bogi vill veita neikvæða umsögn.