Fara í efni

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, til umsagnar drög að reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga.

Málsnúmer 201812002

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 274. fundur - 06.12.2018

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vekur athygli á að ráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga. Í reglugerðinni er kveðið á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins um málefni sveitarfélaga fyrir Alþingi, að minnsta kosti á þriggja ára fresti til fimmtán ára í senn. Í stefnumótandi áætlun skal jafnframt mörkuð aðgerðaáætlun til næstu fimm ára.

Lagt fram til kynningar.