Fara í efni

Hildur Óladóttir sækir um byggingarleyfi fyrir baðhúsi að Bakkagötu 3, Kópaskeri

Málsnúmer 201902060

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 24. fundur - 26.02.2019

Óskað er byggingarleyfis fyrir 24 m² baðhúsi á einni hæð á lóð Mela að Bakkagötu 3 á Kópaskeri. Fyrir liggur teikning unnin af Lárusi Ragnarssyni byggingarfræðingi BFÍ. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir heilbrigðiseftirlits og eldvarnareftirlits. Ennfremur liggja fyrir jákvæðar umsagnir lóðarhafa að Bakkagötu 2 og 5.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.