Fara í efni

Gagnatorg og opið bókhald

Málsnúmer 201903033

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 284. fundur - 14.03.2019

Sveitarstjóri hefur kannað möguleika og kostnað sveitarfélagsins við uppbyggingu svokallaðs Gagnatorgs á heimasíðu Norðurþings. Sömuleiðis hafa verið kannaðar leiðir við uppsetningu opins bókhalds. Sveitarstjóri fer yfir þau samskipti sem hafa átt sér stað um málið og leggur fram tillögu að næstu skrefum.



Sveitarstjóra falið að vinna að samningi um uppsetningu gagnatorgs fyrir sveitarfélagið. Að óbreyttu verði gagnatorgið opnað á haustdögum.