Fara í efni

Boð á fund vinabæja Karlskoga í Svíþjóð dagana 16. til 18. september 2019

Málsnúmer 201904132

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 288. fundur - 02.05.2019

Borist hefur boð frá sveitarfélaginu Karlskoga í Svíþjóð á vinabæjafund dagana 16. - 18. september 2019 í tilefni af því að 100 ár eru frá því að sveitarstjórn Karlskoga kom fyrst saman. Til fundarins er boðið sveitarstjóra, forseta sveitarstjórnar og einum fulltrúa til viðbótar.
Byggðarráð tilnefnir sveitarstjóra, forseta sveitarstjórnar og Hrund Ásgeirsdóttur sem fulltrúa sveitarfélagsins.