Fara í efni

Veiðileyfi göngusilungs í sjó fyrir landi Húsavíkur 2019

Málsnúmer 201905042

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 31. fundur - 14.05.2019

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur að taka ákvörðun um gjald fyrir silungsveiði í sjó fyrir landi Húsavíkur árið 2019.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir veiðileyfi göngusilungs í sjó og mun leyfið kosta 12.000 krónur árið 2019. Gerð verður sú krafa að veiðiskýrslum verði skilað inn í lok hvers veiðitímabils annars fyrirgerir veiðileyfishafi rétti sínum til leyfis að ári.