Fara í efni

Bartosz Romowicz bæjarstjóri Ustrzyki Dolne í Póllandi óskar eftir samvinnu og samstarfi milli Norðurþings og Ustrzyki Dolne

Málsnúmer 201905142

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 292. fundur - 06.06.2019

Fyrir byggðarráði liggur bréf frá Bartosz Romowicz bæjarstjóra Ustrzyki Dolne í Póllandi þar sem óskað er eftir samstarfi og samvinnu í verkefnum sem snúa að uppfyllingu þarfa íbúa Húsavíkur og Ustrzyki Dolne.
Byggðarráð þakkar bæjarstjóra Ustrzyki Dolne fyrir erindið en Norðurþing er nú þegar í vinabæjarsamstarfi við þó nokkur sveitarfélög og mun leggja áherslu á að efla þau samskipti áður en til nýrra vinabæjarsamskipta er stofnað.