Fara í efni

Val á sveitarfélögum til að taka þátt í íbúasamráðsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Akureyrarkaupstaðar - Norðurþing

Málsnúmer 201905148

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 292. fundur - 06.06.2019

Með bréfi dagsettu 28. febrúar s.l. var sveitarfélögum gefinn kostur á að sækja um þátttöku í íbúasamráðsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Akureyrarkaupstaðar. Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á 90. fundi sínum þann 19. mars s.l. að sækja um þátttöku í verkefninu og hefur samráðshópur nú valið þrjú sveitarfélög til að taka þátt í verkefninu og eru þau ásamt Norðurþingi, Kópavogsbær og Stykkishólmsbær.
Lagt fram til kynningar.