Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir 25 m² hús að Skógum 3 í Reykjahverfi.

Málsnúmer 201909057

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 44. fundur - 24.09.2019

Óskað er eftir heimild til að setja niður 25 m² bjálkahús sunnan við fjóshlöðuna að Skógum 3 í Reykjahverfi. Húsið stóð áður á félagssvæði Skotfélags Húsavíkur og eru til af því teikningar frá fyrra byggingarleyfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.