Fara í efni

Menningarmiðstöð Þingeyinga, framlag aðildarsveitarfélaga stofnunarinnar.

Málsnúmer 201910056

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 305. fundur - 17.10.2019

Borist hefur bréf frá Menningarmiðstöð Þingeyinga þar sem fram kemur að framlög til stofnunarinnar hafi verið ofinnheimt á árunum 2017-2018. Menningarmiðstöðin óskar í bréfinu eftir að fá að halda þeirri umframinnheimtu sem átti sér stað og að framlög til stofnunarinnar byggi framvegis á innheimtum framlögum á árunum 2017-2018.
Byggðarráð samþykkir að Menningarmiðstöðin haldi eftir umframinnheimtu fyrri ára og að framlög verði ekki skert.