Fara í efni

Óska eftir breyttri skráningu v/Hafnarbrautar 2, Raufarhöfn

Málsnúmer 201910166

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 49. fundur - 05.11.2019

Pétur Magnússon og Ásdís Thoroddsen, eigendur Hafnarbrautar 2 á Raufarhöfn óska eftir því að fá hús sitt skráð sem einbýlishús í stað núverandi skráningar sem atvinnuhúsnæði. Meðfylgjandi umsókn eru reyndarteikningar af húsinu unnar af Gunnlaugi Ó. Johnson arkitekt. Eldvarnareftirlit Norðurþings gerir ekki athugasemdir við framlagðar teikningar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir breytta skráningu húsnæðisins.