Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Laufási í Kelduhverfi

Málsnúmer 202001097

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 56. fundur - 28.01.2020

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir nýju einbýlishúsi að Laufási í Kelduhverfi í stað þess eldra. Fyrirhuguð bygging er timburhús á einni hæð, 126,1 m² að flatarmáli. Teikning er gerð af Knúti E Jónassyni byggingarfræðingi. Fyrir liggur skriflegt samþykki nágranna.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir erindið og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.