Fara í efni

Fjárfesting OH í varadælu fyrir holu HU-01

Málsnúmer 202004015

Vakta málsnúmer

Orkuveita Húsavíkur ohf - 204. fundur - 08.04.2020

Kallað hefur verið eftir tilboði frá þjónustuaðila í varadælu vegna reksturs holu HU-01 á Höfða og liggur það tilboð nú fyrir. Óskað er eftir afstöðu stjórnar OH til fjárfestingarinnar en æskilegt er að dælan sé til á lager OH svo tryggja megi afhendingaröryggi á heitu vatni til reksturs Sjóbaða ehf.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að fjárfest verði í varadælu til reksturs holu HU-01.