Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskýli við Laugarbrekku 21

Málsnúmer 202005072

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 68. fundur - 26.05.2020

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir óeinangraðri 12,4 m² útigeymslu og bílskýli við Laugarbrekku 21. Teikning er unnin af Knúti E. Jónassyni hjá Faglausn.
Skipulags- og framkvæmdaráð getur ekki fallist á uppbyggingu geymslu úr brennanlegu efni á þessum stað. Leyfi fyrir framkvæmdinni er háð því að geymslan verði eldvarin á fullnægjandi hátt. Einnig er hún háð samþykki nágranna að Laugarbrekku 19 vegna nálægðar við lóðarmörk.