Fara í efni

Beiðni um niðurfellingu sorphirðugjalds 2021 - Iðavellir 6

Málsnúmer 202104116

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 360. fundur - 29.04.2021

Borist hefur ósk um niðurfellingu sorphirðugjalda vegna ársins 2021 fyrir fasteignina Iðavelli 6.
Byggðarráð frestar afgreiðslu málsins þar sem beiðni um að sorpílát verði fjarlægð frá eigninni og innlagningu á klippikorti fylgir ekki umsókn samanber reglur sveitarfélagsins um niðurfellingu sorphirðugjalda.

Byggðarráð Norðurþings - 361. fundur - 06.05.2021

Á 360. fundi byggðarráðs var bókað;
Byggðarráð frestar afgreiðslu málsins þar sem beiðni um að sorpílát verði fjarlægð frá eigninni og innlagningu á klippikorti fylgir ekki umsókn samanber reglur sveitarfélagsins um niðurfellingu sorphirðugjalda.

Beiðni um að sveitarfélagið fjarlægi sorpílát frá Iðavöllum 6 hefur nú borist.
Byggðarráð samþykkir að fella niður sorphirðugjöld á eigninni Iðavöllum 6.