Fara í efni

Völsungur óskar eftir því að sjá um rekstur PCC vallarins á Húsavík sumarið 2022

Málsnúmer 202203010

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 112. fundur - 07.03.2022

Íþróttafélagið Völsungur óskar eftir formlegum viðræðum við Norðurþing um að félagið sjái um rekstur PCC vallarins á Húsavík sumarið 2022.
Fjölskylduráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna kostnaðargreiningu og drög að útfærslu og leggja fyrir ráðið að nýju.

Fjölskylduráð - 117. fundur - 02.05.2022

Eftir viðræður Norðurþings við Völsung var samhljóða ákvörðun beggja aðila að Norðurþing mundi sjá áfram um rekstur vallarins að sinni.

Lagt fram til kynningar.