Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Djúpadalsveg 16 í Þverárdal

Málsnúmer 202210085

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 138. fundur - 08.11.2022

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við frístundahús í Þverárdal. Fyrir fundi liggur teikning af fyrirhugaðri viðbyggingu, unnin af Ragnari F Guðmundssyni arkiktekt. Stærð viðbyggingar er 19,0 m² og húsið verður eftir stækkun 57 m².
Skipulags- og framkvæmdaráð telur fyrirhugaða byggingu í samræmi við deiliskipulag sem samþykkt var af sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps í október 1993 og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni.