Fara í efni

Beiðni um landskipti á milli Lóns 1 og Lóns 2

Málsnúmer 202305104

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 158. fundur - 30.05.2023

Eigendur Lóns 1 (landnúmer 154.112) og Lóns 2 (landnúmer 154.114) í Kelduhverfi óska eftir að sveitarfélagið samþykki að 25,8 ha landskiki úr óskiptu landi jarðanna verði talin tilheyrandi Lóni 2. Með erindi fylgir uppdráttur af hnitsettri afmörkun landsins sem teiknaður er af Guðríði Baldvinsdóttur.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkt verði að tilgreind landspilda tilheyri Lóni 2.

Sveitarstjórn Norðurþings - 135. fundur - 15.06.2023

Á 158. fundi skipulags og framkvæmdaráðs þann 30. maí 2023 var eftirfarandi bókað:

Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkt verði að tilgreind landspilda tilheyri Lóni 2.
Samþykkt samhljóða.