Fara í efni

Krafa um að stöðuleyfi fyrir Helguskúr verði ekki endurnýjað og að Helguskúr verði fjarlægður af Hafnarstétt 15.

Málsnúmer 202309083

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 168. fundur - 19.09.2023

Með bréfi dags. 28. ágúst 2023 fer lögmaður Gentle Giants - Hvalaferða fram á að sveitarfélagið hlutist til um að Helguskúr á Hafnarstétt 15 verði fjarlægður og jarðrask afmáð innan hæfilegs frests eftir að gildandi stöðuleyfi hússins líkur nú um áramót. Lögmaðurinn telur ekki koma til álita að framlengja stöðuleyfi fyrir húsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að upplýsa eiganda Helguskúrs um erindi Gentle Giants - Hvalaferða.