Fara í efni

Ósk um byggingarleyfi fyrir nýju þjónustuhúsi við tjaldsvæðið á Húsavík

Málsnúmer 202403116

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 184. fundur - 26.03.2024

Eignasjóður Norðurþings óskar byggingarleyfis fyrir nýju þjónustuhúsi á tjaldstæðið á Húsavík. Meðfylgjandi umsókn eru teikningar af fyrirhuguðu húsi og afstöðumynd. Teikningar eru unnar af Ragnari Hermannssyni byggingarfræðingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur fyrirhugaða byggingu í samræmi við skipulagsskilmála og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.