Fara í efni

Heidelberg Materials Volcan ehf.kynnir fyrir byggðarráði verkefni sem félagið hefur hug á að koma á fót á Íslandi

Málsnúmer 202501121

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 486. fundur - 06.02.2025

Á fund byggðarráðs koma fulltrúar frá félaginu Heidelberg.
Heidelberg hefur hug á að reisa verksmiðju á Íslandi til að hefja framleiðslu á möluðu móbergi til útflutnings og íblöndunar við sement í þeim tilgangi að minnka verulega kolefnisspor sementsframleiðslu.
Byggðarráð þakkar Þorsteini Víglundssyni frá Heidelberg fyrir komuna á fundinn og greinargóða kynningu á verkefninu.

Í viðhengi með fundargerð er greinargerð vegna verkefnisins þar sem gerð er grein fyrir verkefninu.