Fara í efni

Ósk um leyfi fyrir viðbyggingu á fjárhúsi í landi Höfða við Raufarhöfn

Málsnúmer 202502007

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 210. fundur - 11.02.2025

Óskað er leyfis til viðbyggingar fjárhúss í landi Höfða sunnan Raufarhafnar. Fyrir liggur afstöðumynd af fyrirhugaðri nýbyggingu. SV-horn nýbyggingar er málsett 20,94 m frá miðlínu þjóðvegar. Nýbygging kemur í stað núverandi hlöðu en er þó fjær þjóðvegi en hún.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afla umsagnar Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 217. fundur - 13.05.2025

Óskað er byggingarleyfis fyrir viðbyggingu við fjárhús að Höfða sunnan Raufarhafnar. Erindið var áður tekið fyrir sem fyrirspurn 11. febrúar s.l. og byggingarfulltrúa þá falið að afla umsagnar Vegagerðarinnar. Umsögn Vegagerðarinnar liggur nú fyrir og leggst stofnunin ekki gegn fyrirhugaðri uppbyggingu.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst fyrir sitt leyti á fyrirhugaða uppbyggingu og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.