Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Endurskoðun samþykktar um sorphirðu
Málsnúmer 202505027Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti tillögur varðandi breytingar á samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Norðurþingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi drög að samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Norðurþingi.
2.Gjaldskrá fyrir meðhöndlun og förgun úrgangs 2025
Málsnúmer 202505028Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti drög að nýrri gjaldskrá fyrir meðhöndlun og urðun á úrgangi í Norðurþingi.
Lagt fram til kynningar.
3.Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034
Málsnúmer 202505029Vakta málsnúmer
Á fundinn koma forsvarsmenn Landsnets hf. og kynna kerfisáætlun 2025 - 2034.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fulltrúum Landsnets fyrir komuna á fundinn og kynninguna.
4.Erindi vegna bílastæða við Stóragarð og Ketilsbraut
Málsnúmer 202504097Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá íbúum við Ketilsbraut 11 og 23 vegna bíðastæða við Stóragarð og Ketilsbraut.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara erindinu.
5.Aðstaða fyrir áhorfendur á PCC-vellinum á Húsavík
Málsnúmer 202409077Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur ósk um framkvæmdaleyfi vegna byggingar á stúku við gervigrasvöll PCC. Stúkan er 33 m breið og 2,9 m há og fellur því inn í brekkuna norðan við gervigrasvöllinn. Að auki er ætlunin að koma fyrir tveimur litlum gámaeiningum, annars vegar aðstaða fyrir afgreiðslu og hins vegar snyrtingu. Fyrir liggur undirritað samþykki nágranna vegna framkvæmdarinnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir framkvæmdina.
6.Erindi frá 5.bekk varðandi ærslabelgi á Húsavík
Málsnúmer 202504109Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá nemendum í 5. bekk í Borgarhólsskóla. Óskað er eftir að mottum verði komið fyrir við ærslabelgi á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar nemendum í 5. bekk í Borgarhólsskóla fyrir erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að finna lausn á málinu.
7.Ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands
Málsnúmer 202504100Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur ályktun frá aðalfundi Skógfræðingafélags Íslands sem haldinn var á Hallormsstað 25. mars 2025 sl. Vill félagið minna á mikilvægi grænna svæða í þéttbýli fyrir lýðheilsu fólks og að sveitarfélög nýti sér sérþekkingu skógfræðinga til að styðja við uppbyggingu slíkra svæða.
Lagt fram til kynningar.
8.Skaðsemi vindorkuvera
Málsnúmer 202504098Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi varðandi mögulega skaðsemi vindorkuvera.
Lagt fram til kynningar.
9.Aðalskipulag Norðurþings 2025-2045
Málsnúmer 202305040Vakta málsnúmer
Á 32. fundi stjórnar Hafnasjóðs Norðurþings var eftirfarandi bókað:
Stjórn Hafnarsjóðs leggur áherslu á að athafnarsvæði Húsavíkurhafnar í nýju aðalskipulagi verði afmarkað norður fyrir Forvaða sem er syðst í Bakkakrók, vegna áforma um frekari uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Í núverandi vinnslutillögu er hverfisvernd afmörkuð á þessu svæði.
Ráðið vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Stjórn Hafnarsjóðs leggur áherslu á að athafnarsvæði Húsavíkurhafnar í nýju aðalskipulagi verði afmarkað norður fyrir Forvaða sem er syðst í Bakkakrók, vegna áforma um frekari uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Í núverandi vinnslutillögu er hverfisvernd afmörkuð á þessu svæði.
Ráðið vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur undir sjónarmið Hafnasjóðs Norðurþings hvað varðar afmörkun hverfisverndar.
10.Umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundarhúsi að Stekkjarhvammi 6
Málsnúmer 202505011Vakta málsnúmer
Barbara Maria Józefczyk og Piotr Zalewsky óska byggingarleyfis fyrir 25 m² frístundahúsi að Stekkjarhvammi 6 í Reykjahverfi. Fyrir liggja teikningar unnar af Guðna Sigurbirni Sigurðssyni hjá Riss Verkfræðistofu.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað.
11.Umsókn um byggingarleyfi að Krossdal 2
Málsnúmer 202504073Vakta málsnúmer
Hafliði Hjarðar óskar eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúð sína að Krossdal 2 í Kelduhverfi. Fyrir liggja aðalteikningar unnar af Jónasi Hafþóri Jónssyni hjá Verkráði. Fyrir liggur undirritað samþykki eigenda Krossdals 1 og nágranna í Árdal.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.
12.Ósk um leyfi fyrir viðbyggingu á fjárhúsi í landi Höfða við Raufarhöfn
Málsnúmer 202502007Vakta málsnúmer
Óskað er byggingarleyfis fyrir viðbyggingu við fjárhús að Höfða sunnan Raufarhafnar. Erindið var áður tekið fyrir sem fyrirspurn 11. febrúar s.l. og byggingarfulltrúa þá falið að afla umsagnar Vegagerðarinnar. Umsögn Vegagerðarinnar liggur nú fyrir og leggst stofnunin ekki gegn fyrirhugaðri uppbyggingu.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst fyrir sitt leyti á fyrirhugaða uppbyggingu og heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.
Fundi slitið - kl. 16:00.
Sævar Freyr Sigurðsson, hjá Kvöðli, sat fundinn undir liðum 1 og 2.
Árni Baldur Möller, Guðrún Margrét Jónsdóttir og Arngunnur Einarsdóttir, fulltrúar Landsnets, sátu fundinn (í fjarfundi) undir lið 3.
Birna Björnsdóttir sat fundinn í fjarfundi.
Rebekka Ásgeirsdóttir vék af fundi kl. 15:20.