Fyrirspurn EFS varðandi fjárhagsleg áhrif kjarasamninga milli KÍ og sveitarfélaganna
Málsnúmer 202504050
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 493. fundur - 23.04.2025
Fyrir byggðarráði liggur bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagsleg áhrif kjarasamninga við KÍ.
Byggðarráð vísar málinu til fjölskylduráðs sem og skipulags- og framkvæmdaráðs. Óskað er eftir tillögum frá ráðunum til hagræðingar í rekstri á sínum sviðum. Kjarasamningurinn hefur töluverð áhrif á rekstur sveitarfélagsins, kostnaðaraukinn er á bilinu 60-70 m.kr á ári. Það er því nauðsynlegt að bregðast við og leita allra leiða til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins.
Verið er að vinna að tillögum til hagræðingar sem verða teknar fyrir í ráðunum á næstu fundum og ætti niðurstaða að liggja fyrir um miðjan maí.
Erindi EFS hefur verið svarað.