Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
1.Erindi frá Húsavíkurstofu varðandi vefsíðu stofunnar
Málsnúmer 202504055Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Húsavíkurstofu varðandi vefsíðu stofunnar www.visithusavik.is og beiðni um styrk að upphæð 3.000.000 kr. við endurgerð vefsíðu.
Helga Björg Sigurðardóttir frá Húsavíkustofu kynnir erindið.
Helga Björg Sigurðardóttir frá Húsavíkustofu kynnir erindið.
Byggðarráð þakkar Helgu Björgu fyrir komuna á fundinn.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Húsavíkurstofu um 1 m.kr vegna endurgerðar á vefsíðunni visithusavik.is.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Húsavíkurstofu um 1 m.kr vegna endurgerðar á vefsíðunni visithusavik.is.
2.Ársreikningur Norðurþings 2024
Málsnúmer 202412070Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur til umræðu vinna við ársreikning og endurskoðunarskýrslu vegna seinni umræðu um ársreikning sveitarfélagsins 2024.
Lagt fram til kynningar.
3.Fyrirspurn EFS varðandi fjárhagsleg áhrif kjarasamninga milli KÍ og sveitarfélaganna
Málsnúmer 202504050Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagsleg áhrif kjarasamninga við KÍ.
Byggðarráð bókaði á 490. fundi sínum þann 13. mars sl.
Byggðarráð vísar málinu til fjölskylduráðs sem og skipulags- og framkvæmdaráðs. Óskað er eftir tillögum frá ráðunum til hagræðingar í rekstri á sínum sviðum. Kjarasamningurinn hefur töluverð áhrif á rekstur sveitarfélagsins, kostnaðaraukinn er á bilinu 60-70 m.kr á ári. Það er því nauðsynlegt að bregðast við og leita allra leiða til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins.
Verið er að vinna að tillögum til hagræðingar sem verða teknar fyrir í ráðunum á næstu fundum og ætti niðurstaða að liggja fyrir um miðjan maí.
Erindi EFS hefur verið svarað.

4.Breytingar á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila
Málsnúmer 202504053Vakta málsnúmer
Sveitarfélögin hafa gert samkomulag við ríkið sem felur það í sér að ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila verður alfarið á ábyrgð ríkisins frá og með 1. júlí 2025.
Þá á einnig að einfalda verka- og ábyrgðaskiptingu á hjúkrunarheimilum í sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga með því að þau hjúkrunarheimili færist yfir til ríkisins með sambærilegum hætti og gert var með eignarhlut ríkisins í grunnskólahúsnæði þegar það færðist yfir til sveitarfélaga. Ríkið mun þá jafnframt alfarið taka yfir viðhaldsskyldu á eignunum sem sveitarfélagið bæri annars í samræmi við eignarhlutdeild í viðkomandi eign.

5.Bréf frá Óbyggðanefnd varðandi þjóðlendumál-eyjar og sker- tilkynning frá óbyggðanefnd
Málsnúmer 202402043Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur niðurstaða Óbyggðanefndar varðandi þjóðlendumál- eyjar og sker.
Óbyggðanefnd telur að svo stöddu almennt unnt að leggja til grundvallar að eyjar og sker sem eru allt að 2 km frá landi geti talist fyrir landi í þessum skilningi og að slíkar eyjar og sker séu hlutar þeirra jarða sem næst liggja, svo framarlega sem staðhættir eða aðrar aðstæður mæla því ekki sérstaklega í mót.
Að mati nefndarinnar er hugsanlegt að landfræðilegt gildissvið ákvæðisins nái lengra frá landi en 2 km en það þarfnast frekari rannsóknar, auk þess sem mögulegt er að mat á því kunni að vera atviksbundið og að einhverju leyti háð staðháttum.

6.Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses.2025
Málsnúmer 202504069Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur aðalfundarboð Sparisjóðs Suður- Þingeyinga ses. Fundurinn fer fram á Fosshóteli Húsavík, mánudaginn 28. apríl 2025 kl. 18:30.
Byggðarráð tilnefnir Bergþór Bjarnason sem fulltrúa Norðurþings á fundinum og Hjálmar Boga Hafliðason til vara.
7.Ósk um opnunartíma um páska
Málsnúmer 202504077Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur ósk um lengda opnun aðfararnótt páskadags á Hlöðufelli.
Byggðarráð afgreiddi málið í tölvupósti þann 16. apríl sl. og staðfestir það formlega á þessum fundi.
8.Til umsagnar 268.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202504020Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar 268. mál. Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 23. apríl nk.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 23. apríl nk.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
9.Til umsagnar 271.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202504068Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 271. mál - Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. apríl nk.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.
10.Til umsagnar 272.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202504071Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um 272. mál. Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum). Frestur til að senda inn umsögn er til og með 28. apríl nk.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
11.Föst starfstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri
Málsnúmer 202504078Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur til umsagnar mál nr. 12753 frá allsherjar- og menntamálanefnd
Send út 27.03.2025, frestur til 10.04.2025
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/156/41/?ltg=156&mnr=41
Send út 27.03.2025, frestur til 10.04.2025
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/156/41/?ltg=156&mnr=41
Byggðarráð Norðurþings fagnar framkominni þingsályktunartilögu og telur nauðsynlegt að hún nái fram að ganga.
Byggðarráð tekur undir með Landhelgisgæslu Íslands um að þetta yrði stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Norðurland eystra er stórt og dreifbýlt svæði þar sem oft er um langan veg að fara fyrir næsta sjúkrabíl og/eða að næsta sjúkrahúsi eða flugvelli. Íbúar og gestir hafa þar af leiðandi hingað til ekki haft aðgang að bestu bráðaþjónustu vegna þessara staðbundnu aðstæðna.
Með staðsetningu þyrlu á Akureyri mætti stytta viðbragðstíma sérstaklega á jaðarsvæðum landshlutans, á fjölfarnari svæðum eða leiðum sem ferðamenn heimsækja gjarnan og á hafi úti fyrir Norðurlandi og tryggja þar með bætt aðgengi að enn betri bráðaþjónustu.

12.Fundargerðir stjórnar Húsavíkurstofu 2025
Málsnúmer 202501084Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Húsavíkurstofu frá 12. fundi sem fram fór 8. apríl sl.
Einnig lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Húsavíkurstofu/Markþings 2025 og fjárhagsáætlun 2025.
Einnig lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Húsavíkurstofu/Markþings 2025 og fjárhagsáætlun 2025.
Lagt fram til kynningar.
13.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2025
Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð hverfisráðs Raufarhafnar frá 18. mars sl.
Byggðarráð vísar lið nr. 3 í fundargerð til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Byggðarráð vísar lið nr. 4 í fundargerð til fjölskylduráðs.
Aðrir liðir fundargerðar lagðir fram til kynningar.
Byggðarráð vísar lið nr. 4 í fundargerð til fjölskylduráðs.
Aðrir liðir fundargerðar lagðir fram til kynningar.
14.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202412055Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur 976. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn fór fram 4. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
15.Fundargerðir SSNE 2025
Málsnúmer 202503100Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 72. fundar stjórnar SSNE. Fundurinn fór fram 31. mars sl.
Lagt fram til kynningar.
16.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum.
Málsnúmer 202308046Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja tvær fundargerðir stjórnar samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum. Fundur nr. 79 frá 26. febrúar og nr. 80 frá 12. mars sl.
Lagt fram til kynningar.
17.Fundargerðir Samtaka Sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 202504075Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir stjórnar Samtaka Sjávarútvegssveitarfélaga; nr. 85 frá 19. mars, nr. 86 frá 28. mars, nr. 87 frá 1. apríl og nr. 88 frá 15. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Katrín Sigurjónsdóttir kom á fundinn kl 09:00