Fara í efni

Áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi vegna Flugklasans Air 66N

Málsnúmer 202504104

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 494. fundur - 30.04.2025

Fyrir byggðarráði liggja drög að áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi til stjórnvalda vegna Flugklasans Air 66N.
Byggðarráð tekur undir sameiginlega áskorun sveitarfélaga á Norðurlandi.

Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra skora á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að koma rekstri, uppbyggingu og markaðssetningu Akureyrarflugvallar fyrir hjá sérstakri stjórn eða félagi, sem hefur það að markmiði að alþjóðaflugvöllurinn sé byggður upp og kynntur sem ein af gáttum Íslands. Jafnframt að tryggja þessari stjórn eða félagi fjármagn til að sinna hlutverki sínu, ásamt því að tryggja fullnægjandi fjármögnun Flugþróunarsjóðs.