Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

494. fundur 30. apríl 2025 kl. 08:00 - 10:45 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varaformaður
  • Rebekka Ásgeirsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Benóný Valur Jakobsson
  • Aldey Unnar Traustadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Áki Hauksson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá
Undir lið nr. 1, sat fundinn Níels Guðmundsson endurskoðandi frá Enor.
Undir lið nr. 3, sat fundinn Kári Marís Guðmundsson forstjóri PCC BakkiSilikon hf.

1.Ársreikningur Norðurþings 2024

Málsnúmer 202412070Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til seinni umræðu ársreikningur Norðurþings ásamt skýrslu endurskoðanda vegna ársins 2024.

Á fund byggðarráðs kemur Níels Guðmundsson endurskoðandi frá Enor.
Byggðarráð þakkar Níelsi Guðmundssyni fyrir góða og ítarlega yfirferð á ársreikningi 2024 og vísar honum til seinni umræðu og staðfestingar í sveitarstjórn.

2.Sameiginleg yfirlýsing Carbfix hf.og sveitarfélagsins Norðurþings.

Málsnúmer 202502034Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur sameiginleg viljayfirlýsing Carbfix hf.og sveitarfélagsins Norðurþings.

Áður hafði verið samþykkt yfirlýsing í sveitarstjórn á 151. fundi þann 27. febrúar sl.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.

3.Núverandi staða verksmiðju PCC á Bakka

Málsnúmer 202504092Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur kynning á núverandi stöðu verksmiðju PCC á Bakka.

Á fundinn kemur Kári Marís Guðmundsson forstjóri PCC BakkiSilicon hf.
Byggðarráð þakkar Kára fyrir komuna á fundinn og upplýsingar um stöðu mála hjá félaginu.
Byggðarráð ítrekar þá afstöðu sína hversu starfssemi PCC BakkaSilicon hf. er mikilvæg fyrir samfélagið og rekstur sveitarfélagsins byggir að stórum hluta á beinum og óbeinum tekjum sem starfsemin skilar til Norðurþings.

4.Styrktarsamningur Norðurþings við Björgunarsveitina Garðar

Málsnúmer 202504094Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um framlengingu á styrktarsamningi við Björgunarsveitina Garðar sem hefur runnið sitt skeið.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá framlengingu á samningi við Björgunarsveitina Garðar til þriggja ára.

5.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202504095Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur trúnaðarmál.
Bókað í trúnaðarmálabók.

6.Orkufundur Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 202504091Vakta málsnúmer

Samtök orkusveitarfélaga boða til orkufundar mánudaginn 26. maí nk. í Hljómahöllinni í
Reykjanesbæ.
Fundurinn er vettvangur fyrir sveitarstjórnarfólk, starfsfólk aðildarsveitarfélaganna og aðra áhugasama til samtals um hlutverk, áskoranir og framtíðarsýn í orkumálum.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundarboð - Ársfundur Stapa 2025

Málsnúmer 202504080Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundarboð stjórnar Stapa lífeyrissjóðs á ársfund 2025. Fundurinn verður haldinn 13. maí nk. að Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum kl 14.00.
Byggðarráð tilnefnir Áka Hauksson til setu á fundinum og Aldey Unnar Traustadóttur til vara.
Fylgiskjöl:

8.Fundargerðir HNE 2025

Málsnúmer 202502056Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur 241. fundargerð heilbrigðisnefndar Norðurlands Eystra sem fram fór þann 9. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2025

Málsnúmer 202412057Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir 81, 82 og 83 hjá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga sem fram fóru 19. febrúar, 12. mars og 9. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

10.Fundargerðir Skúlagarðs fasteignafélags 2025

Málsnúmer 202412060Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Skúlagarðs fasteignafélags ehf. frá 25. apríl sl.
Byggðarráð felst á að leið nr. 1 verði farin við sölu á félaginu.

Rebekka vék af fundi undir þessum lið.

11.Áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi vegna Flugklasans Air 66N

Málsnúmer 202504104Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að áskorun frá sveitarfélögum á Norðurlandi til stjórnvalda vegna Flugklasans Air 66N.
Byggðarráð tekur undir sameiginlega áskorun sveitarfélaga á Norðurlandi.

Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra skora á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að koma rekstri, uppbyggingu og markaðssetningu Akureyrarflugvallar fyrir hjá sérstakri stjórn eða félagi, sem hefur það að markmiði að alþjóðaflugvöllurinn sé byggður upp og kynntur sem ein af gáttum Íslands. Jafnframt að tryggja þessari stjórn eða félagi fjármagn til að sinna hlutverki sínu, ásamt því að tryggja fullnægjandi fjármögnun Flugþróunarsjóðs.

12.Sjúkraflug á Húsavíkurflugvelli

Málsnúmer 202504099Vakta málsnúmer

Rebekka Ásgeirsdóttir S-lista óskaði eftir umræðu um sjúkraflug á Húsavíkurflugvelli.

Eftir að ríkistyrktu áætlunarflugi um Húsavíkurflugvöll var hætt í mars síðastliðnum er staða sjúkraflugs um völlinn ekki örugg. Gríðarlega mikilvægt er fyrir velferð og öryggi íbúa svæðisins að greið leið sé í viðeigandi heilbrigðisþjónustu og viðbragðstími sé sem stystur í neyðartilfellum.
Byggðarráð tekur undir með Rebekku að gríðarlega mikilvægt er fyrir velferð og öryggi íbúa og gesta svæðisins að greið leið sé í viðeigandi heilbrigðisþjónustu og viðbragðstími sé sem stystur í neyðartilfellum.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að boða fulltrúa ISAVIA á fund ráðsins.

Fundi slitið - kl. 10:45.