Bréf til sveitarstjórnar vegna vatnsgjalds
Málsnúmer 202504108
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 495. fundur - 15.05.2025
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Valdimar Halldórssyni vegna vatnsgjalds og leiðréttingar á gjaldskrá vatnsveituhluta Orkuveitu Húsavíkur.
Breytingar voru gerðar í vinnu við fjárhagsáætlun Orkuveitu Húsavíkur vegna ársins í ár og þá einkum á skiptingu sameiginlegs kostnaðar á einstaka hluta veitunar þ.e.a.s. hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu.
Hólmgrímur Bjarnason endurskoðandi skýrði breytingarnar fyrir ráðinu og honum þakkað fyrir komuna á fundinn.
Byggðarráð mun fylgja málinu eftir þegar hálfsársuppgjör liggur fyrir í september nk.