Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
Undir lið nr.1 sat fundinn Hólmgrímur Bjarnason endurskoðandi hjá Deloitte.
1.Bréf til sveitarstjórnar vegna vatnsgjalds
Málsnúmer 202504108Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Valdimar Halldórssyni vegna vatnsgjalds og leiðréttingar á gjaldskrá vatnsveituhluta Orkuveitu Húsavíkur.
Byggðarráð þakkar Valdimar fyrir erindið.
Breytingar voru gerðar í vinnu við fjárhagsáætlun Orkuveitu Húsavíkur vegna ársins í ár og þá einkum á skiptingu sameiginlegs kostnaðar á einstaka hluta veitunar þ.e.a.s. hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu.
Hólmgrímur Bjarnason endurskoðandi skýrði breytingarnar fyrir ráðinu og honum þakkað fyrir komuna á fundinn.
Byggðarráð mun fylgja málinu eftir þegar hálfsársuppgjör liggur fyrir í september nk.

2.Heildarendurskoðun á innanlandsflugi, beiðni um gögn
Málsnúmer 202505039Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Vegagerðinni sem hefur verið falið það verkefni af innviðaráðuneytinu að gera heildarendurskoðun á flugi á Íslandi. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu en skil verkefnisins eiga að vera 1. september nk.
Til þess að mögulegt sé að vinna þetta verkefni er þess hér með farið á leit við sveitarfélagið Norðurþing, að það leggi fram eftirfarandi upplýsingar:
Mat sveitafélagsins í íbúaþróun í sveitarfélaginu til næstu 10-15 ára.
Mat sveitafélagsins á atvinnuþróun í sveitarfélaginu til næstu 10-15 ára.
Hvaða þættir hafa áhrif á samgöngur í sveitarfélaginu sem sveitarfélagið telur skipta máli sérstaklega hvað varðar flugsamgöngur.
Félagslegir þættir sem áhrif geta haft á flug á svæðinu.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna tillögu að svörum og leggja fyrir ráðið.
3.Kostnaðaráætlun nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík
Málsnúmer 202104106Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja drög frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu að uppfærðu samkomulagi í ljósi samkomulags ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita uppfært samkomulag ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Samhliða fellur úr gildi samkomulag dagsett 11. júlí 2024.
Samhliða fellur úr gildi samkomulag dagsett 11. júlí 2024.
4.Rekstur Norðurþings 2025
Málsnúmer 202501002Vakta málsnúmer
Fyrri byggðarráði liggja útsvarstekjur í apríl 2025 og annað tengt rekstri sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
5.Söluheimild eigna 2025
Málsnúmer 202406083Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur samantekt á eignum sveitarfélagsins ásamt mati og áætluðu virði þeirra.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna áfram í gögnum vegna eignasafns sveitarfélagsins.
Ráðið mun halda áfram vinnu sinni við greiningu á fasteignum sveitarfélagsins á næstu fundum sínum.
Ráðið mun halda áfram vinnu sinni við greiningu á fasteignum sveitarfélagsins á næstu fundum sínum.
6.Fundadagskrá Byggðarráðs
Málsnúmer 202505033Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur til umræðu dagskrá funda ráðsins næstu mánuði.
Á næsta fundi ráðsins mun liggja frammi tillaga frá formanni um dagskrá funda fram að áramótum.
7.Ósk um gerð styrktarsamnings við Björgunarsveitina Núpa á Kópaskeri.
Málsnúmer 202505016Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá stjórn Björgunarsveitarinnar Núpum á Kópaskeri þar sem óskað er eftir gerð styrktarsamnings.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að styrktarsamningi við Björgunarsveitina Núpa á Kópaskeri og leggja fyrir ráðið.
8.Markaðs og kynningarmál sveitarfélagsins
Málsnúmer 202504093Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur að taka til umræðu markaðs og kynningarmál sveitarfélagsins.
Byggðarráð vísar fyrirkomulagi markaðs og kynningarmála sveitarfélagsins til vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.
9.Vinabæjarmót Karlskoga 5.-9.júní 2024
Málsnúmer 202406032Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja upplýsingar um þátttöku frá Karlskoga í vinabæjarheimsókn til Húsavíkur 16.-18. júní nk. ásamt drögum að dagskrá.
Lagt fram til kynningar.
10.Samantekt á niðurstöðum úr könnun á vegum Ocean Missions
Málsnúmer 202505024Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur samantekt á niðurstöðum úr könnun á vegum félagasamtakanna Ocean Missions um viðhorf nærsamfélagsins til vonarsvæðis Norðausturlands og stjórnun hafsvæðisins.
Lagt fram til kynningar.
11.Framlög til reksturs Áfangastaðastofu Norðurlands
Málsnúmer 202505009Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja drög að endurnýjuðum samningi til þriggja ára á milli SSNE og sveitarfélagsins um framlög til reksturs Áfangastaðastofu Norðurlands.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.
Gjald fyrir þjónustu áfangastaðastofu miðast við íbúafjölda sveitarfélags og er kr. 500,- pr. íbúa og miðast upphæð greiðslu við íbúafjölda 1. desember árið á undan.
Gjald fyrir þjónustu áfangastaðastofu miðast við íbúafjölda sveitarfélags og er kr. 500,- pr. íbúa og miðast upphæð greiðslu við íbúafjölda 1. desember árið á undan.
12.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202412055Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
13.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202412055Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.
14.Fundargerðir svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2024
Málsnúmer 202403007Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 115. fundar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Fundurinn fór fram þann 31. mars sl.
Lagt fram til kynningar.
15.Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands
Málsnúmer 202404008Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands. Fundurinn fór fram þann 17. mars sl.
Lagt fram til kynningar.
16.Matvælaráðuneytið frumvarp til laga um breytingar á lögum um veiðigjald
Málsnúmer 202503110Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145-2018, þingskjal 434, 351 mál.
Í kafla 5.1.3. er í niðurlagi niðurstaða Matvælaráðuneytisins á fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins á sveitarfélög. Í kafla 5.8 er síðan fjallað um breytingar sem hafa orðið á frumvarpinu síðan það var í samráðsgátt.

Byggðarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
17.Til umsagnar 270.mál frá nefnda og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202504105Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 270. mál. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Umsagnaraðilar geta sent umsögn í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 13. maí nk.
Umsagnaraðilar geta sent umsögn í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 13. maí nk.
Umsögn hefur þegar verið send og ítrekuð í umsagnargátt Alþingis.
Fundi slitið - kl. 10:45.