Heildarendurskoðun á innanlandsflugi, beiðni um gögn
Málsnúmer 202505039
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 495. fundur - 15.05.2025
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Vegagerðinni sem hefur verið falið það verkefni af innviðaráðuneytinu að gera heildarendurskoðun á flugi á Íslandi. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu en skil verkefnisins eiga að vera 1. september nk.
Til þess að mögulegt sé að vinna þetta verkefni er þess hér með farið á leit við sveitarfélagið Norðurþing, að það leggi fram eftirfarandi upplýsingar:
Mat sveitafélagsins í íbúaþróun í sveitarfélaginu til næstu 10-15 ára.
Mat sveitafélagsins á atvinnuþróun í sveitarfélaginu til næstu 10-15 ára.
Hvaða þættir hafa áhrif á samgöngur í sveitarfélaginu sem sveitarfélagið telur skipta máli sérstaklega hvað varðar flugsamgöngur.
Félagslegir þættir sem áhrif geta haft á flug á svæðinu.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna tillögu að svörum og leggja fyrir ráðið.
Byggðarráð Norðurþings - 496. fundur - 22.05.2025
Fyrir byggðarráði liggja drög að svörum til Vegagerðarinnar vegna heildarendurskoðunar á innanlandsflugi á Íslandi.
Lagt fram til kynningar.