Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

496. fundur 22. maí 2025 kl. 08:30 - 11:10 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varaformaður
  • Benóný Valur Jakobsson aðalmaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Áki Hauksson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá

1.Áhrif kjarasamninga við K.Í. á fjárhag Norðurþings.

Málsnúmer 202503039Vakta málsnúmer

Meirihluti fjölskylduráðs samþykkir eftirfarandi hagræðingartillögur og vísar þeim til byggðarráðs:
Frá skólaþjónustu 6.500.000 kr.
Frá Tónlistarskóla 10.700.000 kr.
Frá Grunnskóla Raufarhafnar 10.600.000 kr.
Frá Öxarfjarðarskóla 15.000.000 kr.

Ráðið samþykkir jafnframt að hagrætt verði í rekstri Grænuvalla um að lágmarki 17.000.000 kr. á ársgrundvelli í ljósi fækkunar nemenda.

Einnig að hagrætt verði í rekstri Borgarhólsskóla um að lágmarki 28.000.000 kr. á ársgrundvelli með eftirfarandi aðgerðum:
-Breytt fyrirkomulag sérkennslu
-Tilfallandi forföll kennara í 6. - 10. bekk verði ekki leyst nema í undantekningartilvikum

Eftirfarandi aðgerðir eiga við alla grunnskóla í Norðurþingi:
-Föst kennsluyfirvinna verði ekki heimil
-Hlutfall sérkennslu verði að hámarki 20% af kennslustundum viðmiðunarstundarskrár

Samtals hagræðing á velferðarsviði á ársgrundvelli er því 87.800.000 kr.

Ísak Már Aðalsteinsson, fulltrúi S-lista, óskar bókað:
Undirritaður vill koma á framfæri áhyggjum af þeim áhrifum sem fyrirhugaðar hagræðingartillögur hafa á þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Mikilvægt er að hlúa að menntakerfinu og þjónustu við barnafjölskyldur án skerðinga á þjónustu.

Halldór Jón Gíslason, fulltrúi V-lista og óháðra, situr hjá.

Fyrir byggðarráði liggur tillaga velferðarsviðs um hagræðingu í rekstri um 87.800.000 kr. á ársgrundvelli.

Tillagan er samþykkt með atkvæðum Hjálmars og Helenu, Benóný greiðir atkvæði á móti tillögunni.

Samkvæmt 28. gr. og 39. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Norðurþings skulu byggðarráð og fastanefndir sveitarfélagsins funda eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Helena og Hjálmar leggja til í hagræðingarskyni að aðeins verði fundað tvisvar í mánuði í byggðarráði og fastanefndum nema brýn þörf sé á fleiri fundum.
Með þessari breytingu er áætlað að hagræða í nefndarkostnaði sveitarfélagsins um allt að 11.700.000 kr. á ári.

Tillagan er samþykkt samhljóða.

Samtals hagræðing í rekstri sveitarfélagsins vegna aukins kostnaðar í tengslum við kjarasamninga er því 99.500.000 kr. sem er til samræmis við aukin launakostnað vegna kjarasamninganna.

Benóný óskar bókað: Undirritaður hafnar þessum hagræðingartillögum sem bitna fyrst og fremst á þjónustu við börn og ekki síst börn með sértækar stuðningsþarfir. Fjárhagur sveitarfélagsins er sterkur og undirritaður telur að það sé borð fyrir báru og að með skýrari forgangsröðun fjármuna þurfi ekki að koma til svona mikils niðurskurðar á þeirri þjónustu sem sveitarfélagið veitir börnum.
Benóný Valur Jakobsson

Áki óskar bókað: Fulltrúi M-listans styður þessar hagræðingartillögur fjölskylduráðs, enda komnar frá stofnunum sem þær ná til. Það er alltaf mikilvægt að ná hagræðingu í rekstri Norðurþings, sérstaklega þegar hækkanir eins og þessi samningur sem gerður var við kennara í febrúar sl. fól í sér.

2.Slökkvilið Norðurþings

Málsnúmer 202505061Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja upplýsingar um fjárhag og launaleiðréttingu Slökkviliðs Norðurþings.
Kostnaður sveitarfélagsins vegna leiðréttinga á launum slökkviliðsfólks er samtals 16.480.539 kr. og þar af nemur leiðrétting á boðtækjagreiðslum 9.904.004 kr.
Í ársbyrjun 2022 var kafli 14. Hlutastarfandi slökkviliðsmenn, felldur niður í kjarasamningi LSS og SÍS, við þá breytingu hefur rekstrarkostnaður hlutastarfandi liða á landsbyggðinni stóraukist og við því þarf að bregðast.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að tillögum um endurskipulagningu á starfsemi Slökkviliðs Norðurþings. Jafnframt er sveitarstjóra falið að kanna hvort vilji sé til samstarfs hjá nágrannasveitarfélögum um samrekstur slökkviliða á stærra svæði.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202504095Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur trúnaðarmál.
Bókað í trúnaðarmálabók.

4.Rekstur Norðurþings 2025

Málsnúmer 202501002Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur yfirlit um rekstur sveitarfélagsins fyrstu fjóra mánuði ársins 2025.
Lagt fram til kynningar.

5.Kaup á eign

Málsnúmer 202503098Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur undirritaður kaupsamningur vegna kaupa á fasteigninni Höfðavegi 6 á Húsavík.
Norðurþing hefur greitt kaupverðið að fullu, ráðið felur sveitarstjóra að skoða lánamöguleika hjá HMS vegna þessara kaupa þar sem um er að ræða félagslegt húsnæði.

6.Ósk um gerð styrktarsamnings við Björgunarsveitina Núpa á Kópaskeri.

Málsnúmer 202505016Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að samningi til þriggja ára milli Norðurþings og Björgunarsveitarinar Núpa á Kópaskeri.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga til samninga við Björgunarsveitina Núpa á Kópaskeri.

7.Fundadagskrá Byggðarráðs

Málsnúmer 202505033Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur tillaga frá formanni að fundadagskrá byggðarráðs til áramóta.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi fundadagskrá formanns byggðaráðs með fyrirvara um breytingar.

8.Heildarendurskoðun á innanlandsflugi, beiðni um gögn

Málsnúmer 202505039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að svörum til Vegagerðarinnar vegna heildarendurskoðunar á innanlandsflugi á Íslandi.
Lagt fram til kynningar.

9.Áskorun til Norðurþings

Málsnúmer 202410067Vakta málsnúmer

Aldey Unnar Traustadóttir óskar eftir því að málið verði tekið upp að nýju og hver sé staða málsins hjá sveitarfélaginu.

Bókun frá 479. fundi ráðsins frá 24. október 2024:
Byggðarráð þakkar áskorunina. Ráðið felur sveitarstjóra að afla gagna um núverandi samning um færsluhirðingu, þar á meðal kostnað við að endurskoða hann og leggja fyrir ráðið að nýju.
Fyrir liggur að sveitarfélagið Norðurþing hefur slitið á öll viðskiptatengsl við fyrirtækið Raypid.

10.Málþing um byggðafestu ungs fólks

Málsnúmer 202505038Vakta málsnúmer

Nýheimar þekkingarsetur heldur málþing í tengslum við verkefnið HeimaHöfn sem fjallar um byggðafestu ungs fólks dagana 23.-24. september nk. á Höfn í Hornafirði.

Forskráningu á málþingið lýkur þann 20. maí nk.
Lagt fram til kynningar.

11.Umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga vegna frumvarps um breytingar á veiðigjaldi og samantekt KPMG

Málsnúmer 202504028Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur samantekt gagna vegna umsagnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um frumvarp um breytingu á lögum um veiðigjöld.
Einnig til kynningar drög að umsögn samtakanna um hækkun veiðigjalda.
Lagt fram til kynningar.

12.Til umsagnar 351. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202505041Vakta málsnúmer

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni), 351. mál.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. maí nk.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda inn þá umsögn sem kynnt var á fundinum.

13.Áform um lagabreytingar á sviði sveitarstjórnarmála í samráðsgátt stjórnvalda

Málsnúmer 202505045Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).

Frestur til að veita umsögn um áformin er til 9. júní nk.
Lagt fram til kynningar.

14.Til umsagnar 298.mál frá nefnda og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202505049Vakta málsnúmer

Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 28. maí nk.
Lagt fram til kynningar.

15.Aðalfundur MMÞ 2025

Málsnúmer 202505064Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur dagskrá og fundarboð á aðalfund Menningarmiðstöðvar Þingeyinga sem haldinn verður í Safnahúsinu á Húsavík 26. maí kl 17:00.
Lagt fram til kynningar.

16.Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2025

Málsnúmer 202505063Vakta málsnúmer

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar mánudaginn 2. júní 2025 kl. 13:00-15:00. Fundurinn verður haldinn á Múlabergi, Hótel Kea á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.

17.Fundargerðir SSNE 2025

Málsnúmer 202503100Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 73. fundar stjórnar SSNE til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

18.Þinggerð ársþings SSNE 2025

Málsnúmer 202505059Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur þinggerð ársþings SSNE 2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:10.